Eldvarnareftirlit

Hvað gerir eldvarnareftirlitið?

Starfsemi eldvarnareftirlits byggir á 12 grein laga nr 75/2000. Hlutverk eldvarnareftirlits B.S er að:
Hafa í samvinnu við byggingafulltrúa eftirlit með því að nýbyggingar fullnægi öryggiskröfum samkvæmt lögum og reglugerðum um brunavarnir áður en notkun þeirra er heimiluð.
Gera úttekt á mannvirkjum í notkun og gera kröfur um nauðsynlegar úrbætur á brunavörnum til að vernda líf, heilsu fólks umhverfi og eignir.
Leiðbeina fyrirtækjum og stofnunum eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi.
Hafa eftirlit með því að eigendur og forráðamenn atvinnuhúsnæðis sinni skyldum sínum um brunavarnir samkvæmt lögum og reglugerðum í samræmi við leiðbeiningar sem Brunamálastofnun gefur út.
Að halda skrá yfir öll mannvirki og aðra staði þar sem eldsvoði getur valdið sérstakri hættu á manntjóni eða umtalsverðu tjóni á umhverfi eða öðrum verðmætum.


Starfsmenn eldvarnareftirlits eru þrír og er starfseminni skipt í tvo megin þætti, forvarnarfræðslu og hefðbundið eldvarnareftirlit. Eldvarnareftirlit BS vinnur í samstarfi við byggingafulltrúa, lögreglu, vinnueftirlit, heilbrigðiseftirlit, barnaverndarnefnd vegna úttekta hjá dagmæðrum, menntastofnanir vegna almenningsfræðslu og fleiri aðila í því skyni að efla brunavarnir og öryggismál almennt á starfssvæði BS.


Markmið

Lögð er áhersla á að ná til almennings í samvinnu við menntastofnanir á svæði Brunavarna Suðurnesja með sérstaka áherslu á leikskóla og grunnskóla.

  • Haldin eru námskeið í brunavörnum fyrir starfsmenn fyrirtækja og stofnana.

  • Skoðun fyrirtækja samkvæmt leiðbeiningarblaði frá Brunamálastofnun þar um. Eldvarnareftirlit BS framkvæmir um 300 skipulagðar skoðanir og 150 eftirskoðanir á ári, skýrslur eru sendar til forráðamanna fyrirtækja þar sem kröfur um úrbætur eru gerðar ef þörf er á, ef um mjög alvarlega ágalla er að ræða er gerð framkvæmda áætlun í samráði við viðkomandi forráðamann um lagfæringar á húsnæðinu.

  • Árlega að heimsækja þau heimili sem eru í mestri fjarlægð frá slökkviliðsstöð með fræðslu um brunavarnir og rétt viðbrögð við eldsvoða.

  • Skoðunum er forgangsraðað eftir mikilvægi.

  • Skoðanir hjá dagmæðrum.

  • Skoðun teikninga og ráðgjöf.

  • Farið í skyndiskoðanir á veitinga og skemmtistaði.

  • Skoðanir vegna leyfsveitinga að beiðni lögreglu.

  • Viðurkenningar eru veittar fyrir góðar brunavarnir að lokinni ástandsskoðun.


Framkvæmd

Starfsemi

Að búið sé að framkvæma skoðanir á fyrirtækjum og vinnustöðum samkvæmt leiðbeiningum frá Mannvirkjastofnun samkvæmt tíðni skoðana eftir viðkomandi vinnustað eða byggingu.

  • Halda upp öflugri almannafræðslu.

  • Að koma í veg fyrir manntjón, heilsutjón, umhverfistjón og eignatjón með virku eftirliti og fræðslu.