Sumarstörf 2026

Brunavarnrir Suðurnesja leita að fólki í sumarstörf 2026 í sjúraflutninga og slökkviliðsstarf.

Tímabil ráðningarinnar er frá 1. maí til 30. september.

Unnið er á 12 tíma vöktum í vaktakerfinu 5-5-4 og eru vaktirnar frá 08:00-20:00 og frá 20:00-08:00

Umsóknafrestur er til 16. mars 2026

Þeir sem eru þegar búnir að sækja um hjá slökkviliðinu þurfa að staðfesta um ósk í sumarstarf með að senda tölvupóst á bs[at]bs.is

Ef ykkur vantar frekari upplýsingar getið þið sent línu á bs[at]bs.is

Upplýsingar um kröfur

    • Umsækjendur skulu hafa náð 20 ársa aldri.

    • Starfsleyfi í sjúkraflutningum frá Landlækni

    • Grunnnám slökkviliðsmanns frá Brunamálaskólanum

    • Hreint sakavottorð

    • Fullgilt sveinspróf, stúdentspróf eða sambærilegri menntun.

    • Hafa aukin ökuréttindi (C-flokkur).

    • Geta til að vinna undir álagi.

    • Jákvæðni, færni í samskiptum, frumkvæði.

    • Góðir líkamsburði og gott andlegt / líkamlegt heilbrigði.

    • Góð sjón og heyrn, rétt litaskyn og vera ekki lofthrædd(ur) eða með innilokunarkennd.

    • Gott siðferði, almenn reglusemi og háttvísi.

    • Göngupróf á bretti. Umsækjendur þurfa að ganga í 10 mínútur á göngubretti klæddir í eldgalla og með 12 kg kút á bakinu (samfellt vegur gallinn með kút í kringum 23 kg.) Ganga þarf í 1 mínútu í 4% halla, 1 mínútu í 7% halla, 6 mínútur í 12% halla og 2 mínútur í 14% halla.

    • Hraðinn er 5,6.

    • Réttstöðulyftur: Þyngd 75 kg og 10 endurtekningar.

    • Upphífingar: 7 endurtekningar.

    • Armbeygjur: 7 endurtekningar í 12 kg vesti.

    • Planki: 60 sekúndur.

    • Dúkkuburður: Taka þarf dúkkuna upp með svokölluðu slökkviliðstaki og ganga með hana samtals 40 metra á innan við 60 sekúndum. Þyngd dúkku er 70 kg.

Ég hef áhuga á að sækja um