Forsíða  >> 
25. nóvember 2008
Eldvarnaátak slökkviliðanna.
Eldvarnaátak slökkviliðanna.

Ár hvert er haldin forvarnarvika á landsvísu í lok nóvember, sem er samstarfsverkefni Landssambands Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna og slökkviliða um allt land auk styrktaraðila. Slökkviliðsmenn um land allt taka þátt og heimsækja 3. bekk grunnskólanna með fræðslu um eldvarnir. Tilgangurinn er að fá börnin til að fara með upplýsingar inn á heimilin og hvetja foreldrana til að gæta að eldvörnum heima, þ.e. reykskynjurum og slökkvitækjum. Þessi árstími er valinn því í hönd fer aðventan með allri sinni ljósadýrð.

Við hjá Brunavörnum Suðurnesja höfum verið þátttakendur í þessari viku og er þetta skemmtilegur tími. Þá getum við farið aftur á fund fræðsluþyrstra nemenda, já aftur því fyrir um mánuði síðan vorum við hjá BS  með rýmingaræfingu í skólunum en þar æfa nemendur og starfsfólk skólans viðbrögð ef upp kæmi eldur í skólanum. Allt þarf að ganga upp, það er að allir komist út úr byggingunni, fylgi sýnum bekk, fari í röð og koma saman á fyrirfram ákveðnum stað. Starfsmenn þurfa að telja nemendur og koma skilaboðum til slökkviliðsins þegar það mætir á staðinn. Tryggja þarf að allir séu komnir út, ef svo er ekki fer af stað vinna hjá slökkuliðsmönnum í leit í skólanum af þeim sem er saknað við talningu þar til þeir eru fullvissir um að allir séu komnir út.

Svona forvarna-æfingar eru framkvæmdar í öllum skólum og leikskólum á starfssvæði BS, en á því svæði eru átta grunnskólar og tólf leikskólar. Þessar rýmingaæfingar í skólana hafa staðið yfir síðastliðin 14 ár. Jafnframt fer BS í leikskólana með verkefni sem heitir “Logi og Glóð”. Auk þess að heimsækja leikskólana fá börnin að koma í heimsókn á slökkvistöðina. Nemendur í heimilisfræði í  10. bekk koma í heimsókn á slökkvistöðina til að fræðast um slökkvitæki og notkun á eldvarnarteppi og fá æfingu í að slökkva eld í logandi potti.

Eins og þið hafið lesið hér að framan er ég í mjög skemmtilegu starfi, við forvarnir og fræðslumál hjá BS. Hluti af því er að fræða nemendur leikskóla, grunnskóla og starfsmanna skólanna um eldvarnir. Svo er það spurningin: Skilar þetta einhverjum  árangri?
Jú forvarnarfræðslan er að virka. Foreldrar hringja og segja okkur frá því að börnin neiti að fara að sofa á kvöldin fyrr enn búið er að athuga með reykskynjarana, að þau séu fullviss um hvar sími heimilisins sé til að hringja í 112 og hvort það sé búið að tala við hann “Sigga á móti” hvort að þau geti  komist í skjól ef það þyrfi að rýma húsið.

Eitt af því sorglegra sem við heyrum í fréttum er þegar hefur orðið eldsvoði, ég man eftir tilviki þar sem kveiknaði í út frá tauþurrkara um  miðja nótt, það uppgvötaðist um eldinn  vegna þess að barn á heimilinu vaknaði og var að biðja um vatnsglas vegna þorsta en í þessari íbúð var ekki reykskynjari, enginn veit hvað hefði getað gerst ef barnið hefði ekki vaknað? Er þinn reykskynjari í lagi?


Ólafur Ingi Jónsson
Verkefnisstjóri
Forvarnar- og fræðslusviðs
Brunavarna Suðurnesja.

Til baka