Forsíða  >> 
24. mars 2007
Maður fellur milli báts og bryggju í Njarðvíkurhöfn

Á áttunda tímanum í morgun barst Slökkviliði BS beiðni um lífsbjörgun þegar maður féll milli báts og bryggju í Njarðvíkurhöfn.  Sjúkrabíll ásamt Slökkviliðsbíl mönnuðum slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum m.a. í flotgöllum fóru á vettvang til aðgerðar, en maðurinn var þá komin úr sjónum.  Sjúkrabíllinn flutti manninn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar og er hann við góða heilsu eftir volkið.  Atvikið gerðist þannig að maðurinn féll í sjóinn þegar landgangur sporðreystist.  Björgunarsveitir ásamt kafara voru að auki kallaðar á vettvang en fljótlega afturkallaðar því tilfellið fór betur en áhorfðist í upphafi.  Rólegt hefur verið hjá BS það sem af er helginni. (sigm. eyþ.)


Til baka