Brunavarnir Suðurnesja kvöddu Björn Inga Knútsson, fráfarandi flugvallarstjóra á Keflavíkurflugvelli, í kveðjuhófi sem fram fór í Leifsstöð í morgun. Brunavarnir Suðurnesja hafa notið velvilja Björns í málefnum brunavarna og almannavarna á starfsferli hans sem flugvallarstjóra í 9 ár. Samstarfið hefur verið afar farsælt og gagnast báðum aðilum svo um munar og ekki síst nú við brotthvarf varnarliðsins þegar Björn tók m.a. við rekstri Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli, en þá lagði Björn áherslu á aukið öryggi á svæðinu og á Suðurnesjum sem heild.
Björn Ingi var leystur út með gjöfum og góðum orðum af sínu nánasta samstarfsfólki. Brunavarnir Suðurnesja óska honum og hans fjölskyldu velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi, en Björn hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Saltkaupa. Saltkaup eru umsvifamesta fyrirtæki landsins í viðskiptum með salt.
.JPG&ext=jpg&w=300&h=211)
Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri BS færir Birni Inga gjöf frá Brunavörnum Suðurnesja og almannavörnum sem þakklætisvott fyrir gjöfult og farsælt samstarf.