“Föstudagsæfingar” mars mánaðar hjá BS er “útkall-reykköfun”. Æfingin fer fram í æfingahúsi BS í Helguvík, þar sem kveiktir eru eldar í húsinu og æfð er vinnuferli útkalla, stjórnun, leit og björgun sem og reykköfun. Áhersla er lögð á rétt vinnuferli, góð samskipti reykkafara um fjarskipti. Í dag var það C hópur sem æfði, en umsjón með æfingunni var á höndum Ingvars Georgssonar þjálfunarstjóra BS. Stjórnandi var Sigurður Skarphéðinsson varðstjóri. Æfingin gekk vonum framar. (Sigm. Eyþ.)





