Desembermánuður er sá mánuður sem eldvarnir og öryggismál eru í brennidepli. Þetta er sá tími sem allir eru á fullu að undirbúa hátíðarhöld um jól og áramót, mikið er um ljósadýrð og alltaf er eitthvað í “pottunum” til að gleðja samverustundir hópa og fjölskyldna; sömuleiðis er verið að undirbúa áramótin með kaupum á blys- og skoteldum sem nota skal um áramóta- og á þrettándafagnaði.
Samhliða þessu hafa slökkviliðsmenn Félags Starfsmanna Brunavarna Suðurnesja (FSBS) verið með sína árlegu sölu og áróðursbása í Garði, Reykjanesbæ og Vogum þar sem fólk á ferli er spurt “Eru eldvarnir á þínu heimili í lagi?” Slökkviliðsmenn buðu fræðslu úr áratuga “visku-og reynslubrunni” sínum með því m.a. að ráðleggja fólki varðandi uppsetningu á reykskynjurum og öðrum öryggisbúnaði, því öryggismál ættu ávallt að vera efst á baugi til að vel takist um hátíðarnar. Sala FSBS á eldvarnar-og öryggisbúnaði hefur verið mikil og viðtökur samfélagsins vonum framar.
Bestu þakkir fyrir stuðning ykkar, góðar viðtökur og samstarfið. Gleðilega hátíð!
Starfsmenn FSBS.
.JPG&ext=jpg&w=300&h=225)
.JPG&ext=jpg&w=300&h=225)