Forsíða  >> 
10. mars 2007
Óvænt en skemmtileg heimsókn

Oliver Snorri fæddist á ofsa ferð í sjúkrabíl rétt við álverið í Straumsvík á leið á fæðingadeildina fyrir ári síðan og segir Kristín Snorradóttir móðir Olivers að hann hafi ekkert hægt á sér síðan.  Af því tilefni heimóttu þau Slökkvilið BS og færðu slökkviliðs-sjúkraflutningamönnum BS afmælisköku, myd af slökkvliðsmanni, og að sjálfsögðu var kökunni gerð góð skil.  Oliver, sem er upprennandi slökkviliðsmaður, var að sjálfsögðu ánægður hrifin af  tækjum og tólum slökkviliðsins, þó sérstaklega bláum blikkandi ljósum sjúkrabíla.  Oliver deildi hluta úr fyrsta afmælisdegi sínum með okkur og þökkum við þeim fyrir óvænta og skemmtilega heimsókn. (Sigm. Eyþ.)


Ármann Árnasson og Eiríkur Reynisson voru á vakt og tóku á móti Oliver í sjúkrabílnum 10 mars 2006.


Glæsileg og góð afmæliskaka.

Til baka