Frá miðnætti á föstudag var töluverður erill hjá Brunavörnum Suðurnesja; fyrrihlutinn var þó fremur rólegur fram undir hádegi, en þá höfðu einungis verðið tveir sjúkraflutningar, annað tilfellið var bráðatilfelli vegna veikinda.
Rétt eftir hádegið, um kl 13:15, barst boð frá brunkerfi íbúðarhúss í Höfnum. Örfáum mínútum síðar, þegar slökkviliðs-og sjúkraflutningamenn BS komu á staðinn var kominn nokkur reykur í íbúðina en engin eldur, og því lítill hiti. Brunakerfið var enn í gangi og húsráðendur ennþá í værum blundi eftir að hafa sofnað út frá eldamennsku. Tveir reykkafarar fóru inn, slökktu á eldavélinni og fjarlægðu potta með ansi brenndum matvælum út úr húsinu. Slökkviliðs þurftu að nota reykblásara til að reykræsta íbúðina, en skemmdir urðu óverulegar. Líklegt er að kerfið og snögg viðbrögð við boðun þess hafi komið í veg fyrir eignatjón og jafnvel manntjón.
Fjórir sjúkraflutningar urðu síðan í kjölfarið þar af tvö bráðatilfelli vegna veikinda.
Sigm. Eyþórs.
.JPG&ext=jpg&w=300&h=225)
Mynd tekin af æfingu slökkvilðssins og tengist ekki frétt.