Reiknað er með að yfir 700 manns hafi nú aðsetur á háskólasvæði Reykjanesbæjar, eða á Vallarheiði, eins og sumir nefna svæðið. Brunavarnir Suðurnesja hafa annast Brunavarnir, slökkviliðs- og sjúkraflutningaþjónustu á svæðinu núna í nokkra mánuði í kjölfar yfirtöku Reykjanesbæjar og mótun svæðisins í núverandi ástand. Fyrsta æfing BS á svæðinu, “Stórt útkall” var keyrð í kvöld, miðvikudaginn 24 október þegar Neyðarlínan tilkynnti um ímyndaðan eld í byggingu #632. Tilkynnt var um mikinn eld og að sjö væru föst inni í byggingunni, þar af væru tvö börn.
Til stendur að rífa bygginguna sem var þvottahús og fatahreinsun Varnarliðsmanna. Bygging sem er nokkuð stór og víðfeðmt, miklir ranghalar, bíður góða möguleika á erfiðri leit og langri reykköfun fyrir slökkviliðsmenn. Húsið var reykfyllt þannig að reykkafarar þurftu að fylgja öllum grunnþáttum reykköfunar, svo vel mætti til takast. Margir reykkafarar voru samtímis inni í leit þannig að góð reykköfunarstjórnun, skráning og fjarskipti voru mikilvæg. Þá var áhersla lögð á að virkja alla útivinnulýsingu og rafbúnað liðsins. Byggingin er afar hentug og hefur Brunamálaskólinn notað hana óspart til æfinga í reykköfun á námskeiði fyrir atvinnuslökkviliðsmenn, sem nú er í gangi.
Æfingin var vel undirbúin og tókst nokkuð vel.
(Sigm. Eyþórs)
.JPG&ext=jpg&w=300&h=225)
Mynd: Æfing í Lindesberg 2003