Þann 20 febrúar s.l. eignuðust þau Ari Elíasson slökkviliðs-og sjúkraflutningamaður BS og Eva Lind Ómarsdóttir stúlku sem heitir Lilja Líf. Fljótlega eftir fæðingu kom í ljós að Lilja fæddist með hjartagalla. Í fyrstu var vonast eftir að þessi galli væri ekki það alvarlegur að læknisaðgerðar væri þörf en nú er það ljóst að aðgerð verður ekki umflúin. Þurfa þau því að ferðast með hana til Boston í mikla og erfiða hjartaaðgerð. Kostnaður við slíka ferð og aðgerð er mjög mikill og hafa því starfsmenn Brunavarna Suðurnesja ákveðið að fara af stað með söfnun.
Þann 9. maí næstkomandi ætla samstarfsfélagar Ara að sýna samhug í verki og ganga frá slökkviliðsstöðinni í Hafnarfirði til slökkviliðsstöðvarinnar í Reykjanesbæ, klæddir í eldgalla með reykköfunartæki. Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir Ara og fjölskyldu. Margt smátt gerir eitt stórt og hvetjum við til samhugar og velvilja.
Reikningur þessi er í Sparisjóðnum í Keflavík og er númer hans
1109-05-420000 og kennitala 030773-4469
Við vonumst að sem flestir sjái sér fært þér að styðja þessa ungu fjölskyldu á erfiðum tímum.
Með von um góð og jákvæð viðbrögð og fyrirfram þökk,
Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja.