Í morgun hófst námskeið fyrir atvinnuslökkviliðsmenn í aðstöðu Brunamálaskólans á gömlu herstöðinni “Vellinum.” Elísabet Pálmadóttir skólastjóri setti námskeiðið, sem er annað sinnar tegundar sem haldið er í aðstöðu skólans. Námskeiðið sem er samtals 540 kennslustundir í tveim hlutum, en fyrrihlutinn stendur yfir næstu sjö vikur og sá síðari verður haldin á sama tíma að ári liðnu, eða um hastið 2008. Nemendur koma frá atvinnuslökkviliðunum og eru kennarar reyndir með bóklega þekkingu og verklega reynslu. Við munum fylgjast með námskeiðinu og birta fréttir og frekari myndir. --Sigm. Eyþ.
.JPG&ext=jpg&w=300&h=225)