Forsíða  >> 
1. mars 2007
Brunamálaskólinn fær aðsetur á Suðurnesjum

Á fimmtudaginn 1. mars n.k. verður stigið stórt skref þegar Umhverfisráðherra Jónína Bjartmars, æðsti yfirmaður bruna-og umhverfismála, opnar með formlegum hætti nýtt aðsetur Brunamálaskólans í húsnæði Þróunarfélagsins á Varnarsvæðinu.  Það er mikill hugur og kraftur í stjórnendum og starfsfólki skólans, tvö námskeið núþegar í gangi, annað 540 kennslustundir haldið fyrir atvinnuslökkviliðsmenn og hitt námskeið er haldið fyrir stjórnendur slökkviliða.  Slökkviliðsmenn frá Akureyri, Höfuðborgarsvæðinu, Brunavörnum Suðurnesja og landsbyggðinni sækja námskeiðin og njóta aðstöðu í Reykjanesbæ; líkamsræktarstöðin Lífsstíll annast umsjón þrek-og þolþjálfunar atvinnuslökkviliðsmanna á námskeiðinu.  Allir nemar á atvinnuslökkviliðsmannanámskeiðinu verða að sjálfsögðu að vera í sínu besta formi í lok námskeiðsins.

Nám fyrir slökkviliðsmenn og fræðin í heild, er mjög sértæk.  Því þarf kennsla við brunamálaskólann að vera bæði bókleg og verkleg, en vegna aðstöðuleysis hér á landi hefur verkleg þjálfun að miklu leiti verið sótt til Svíþjóðar og Bandaríkjanna.  Hér á landi hafa slökkvilið verið að koma sér upp grunnaðstöðu til æfinga m.a. í gámasamstæðum og höfum við hjá Brunavörnum Suðurnesja (BS) smíðað eina slíka sem endurspeglar stórt íbúðarhús á tveim hæðum ásamt risi.  Gámasamstæðan er staðsett á svæði BS við Kölku í Helguvík, en þar höfum við kveikt æfingaelda og æft flesta verkþætti slökkviliða m.a. heita reykköfun—björgun mannslífa, reyklosun með yfirþrýsting, aðkomu og inngöngu í húsnæði þar sem staðfestur eldur er og fleira.   Nú fáum við tækifæri til að leggja skólanum lið og sameina krafta okkar í uppbyggingu á öflugu þjálfunarsvæði.  Undanfarin ár hafa slökkviliðin sótt verklega þjálfun til Svíþjóðar og þaðan kemur þessi fyrirmynd að mestu, en uppruninn er að sjálfsögðu frá Bandaríkum.  Með föstu aðsetri Brunamálaskólans verður starfsemi skólans sjálfstæðari, kennslan verður markvissari og hagkvæmari í rekstri og skólinn getur betur staðið við skyldur sínar í lögum. 

Landfræðilega og veðurfarslega er staðsetning skólans mjög hentug.  Á Suðvestursvæðinu eru flestir íbúar landsins, flestir starfandi atvinnuslökkviliðsmenn búa hér á svæðinu, hér er öll þjónusta til staðar og mest til af búnaði til æfinga.

Með tilkomu Brunamálaskólans á Suðurnesin, sem nú hefur starfsemi sína og fótfestu í stækkandi, öflugu og sterku “þjónustusamfélagi”, sjáum við tækifærin endalausu.  Við höfum tækifæri til að sameina krafta okkar í uppbyggingu á öflugu skólastarfi Brunamálaskólans sem og skólastarfi í miklu víðara samhengi sem þjónar ekki bara slökkviliðsmönnum heldur öðrum viðbragðsaðilum m.a. fulltrúum almannavarna, slysavarna og Landsbjörgu, öryggisvörðum, lögreglumönnum og öðrum úr björgunargeiranum erlendum sem innlendum.  

Ég vil nota þetta tækifæri og óska Brunamálastofnun, Suðurnesjamönnum sem og slökkviliðsmönnum á landinu öllu til hamingju með þennan frábæra áfanga.

Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja.

 

 


Til baka