Forsíða  >> 
2. ágúst 2007
Rólegheitin undanfarið mikil viðbrigði

Rólegheitin undanfarið eru mikil viðbrigði.  Frí hjá fólki og fámennt byggðarlag er helsta skíring sem okkur hjá BS dettur í hug.  Vikan fyrir verslunarmannahelgi er greinilega notuð til frítöku af mörgum.  Mörg fyrirtæki gefa frí þessa viku og aðrir taka “langa helgi”.  Undanfarið hafa útköll slökkviliðs BS verið fá.  Fjöldi útkalla sem af er vikunni eru einungis fimm, en að meðaltali hafa verið um 8 útköll á sólahring hjá BS það sem af er árinu, toppurinn eru þá 31 útkall einn sólahringinn fyrr í sumar.  Ekkert útkall var síðasta sólarhringinn en óhöppin gera ekki boð á undan sér og því verður ávallt að viðhalda góðu og skjótu viðbragðið í neyðar- og bráðaþjónustu.  Vegna breytinga m.a. fjölgun útkalla og stækkun útkallssvæðisins, voru settar á bakvaktir yfir orlofstímabilið til að auka útkallsstyrk og tryggja liðstyrk í bráðatilfellum.  Við hjá BS óskum öllum góðrar ferðar og skemmtunar um verslunarmannahelgina og hvetjum fólk til að fara varlega í hvívetna þannig að helgin verði sem mest slysalaus.  (sigm.)


Til baka