Litlu mátti muna þegar eldur kom upp í kjallara að Tjarnargötu 35 í Reykjanesbæ um klukkan 08:50 í morgun, mánudaginn 22 jan. Bruna- og öryggiskerfi hússins sendi brunaboð til stjórnstöðvar Securitas sem gerði Slökkviliði BS viðvart. Þegar Slökkvilið kom á staðinn voru húsráðendur að heiman en megn brunalykt var að finna á staðnum þó var enginn eldur sjáanlegur. Tveir reykkafarar með sérstaka hitamyndavél voru strax sendir inn til nánari skoðunar. Fljótlega kom í ljós töluverður hiti í kjallara hússins, í herbergi innaf bílskúrnum logaði eldur sem var á mörkum þess að berast á milli hæða um rafmagnslögn. Reykkafarar fundu að auki nokkuð af heimilisdýrum m.a. dísarfuglum, Afríkufugl, ketti og hund og tókst að bjarga þeim.
Talið er nokkuð víst að illa hefði farið ef húsið hefði verið án brunaviðvörunarkerfis beintengdu í stjórnstöð, sem eins og áður sagði gerði slökkviliði BS viðvart. Nokkrar sótskemmdir eru í kjallara hússins, en íbúðin er að mestu óskemmd. Eldsupptök eru talin vera út frá rafmagni, en rannsóknardeild lögreglunnar í Keflavík fer með rannsókn málsins.
