Starfsmenn BS eru vonum framar ánægðir með viðbrögð og samhug vegna átaksins til styrktar starfsbróður okkar, Ara Elíassyni og fjölskyldu hans. Ari og kona hans, Eva Lind Ómarsdóttir, eignuðust í lok febrúar fallega dóttur, Lilju Líf, sem greindist með Downs heilkenni og alvarlegan hjartagalla. Bæði fyrirtæki og einstaklingar hafa haft samband við BS til styrktar og borið góðar óskir og kveðjur til fjölskyldunnar. Við erum einstaklega þakklátir, og sömuleiðis er fjölskylda Lilju Lífar afar þakklát fyrir þetta góða framtak.
Sjá nýjar myndir frá göngunni í myndasafni BS
Ennþá er hægt að láta gott af sér leiða fyrir félaga í neyð.
Styrktarreikningurinn er hjá Sparisjóðnum í Keflavík, tekið á móti frjálsum framlögum á eftirfarandi reikning:
1109-05-420000
Kennitala: 030773-4469
