Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja eru þessa dagana að taka þátt í EPLS fyrirlestri ásamt verklegum æfingum (European Paediatric Life Support) sem haldið er af Jóni Garðari svæfingarhjúkrunarfræðing, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanni. Námskeiðið gerir sjúkraflutningamenn BS betur undirbúna til þess að bregðast við í bráðatilfellum sem eru tengd börnum og ungbörnum ein sog t.d. í sérhæfðari endurlífgun. Það var einróma álit sjúkraflutningamanna að námskeiðið hafi verið mjög gott en vonandi verði aldrei þörf á að nýta sér þessa þekkingu.

Eyþór, Sturla, Ármann, Jón Garðar og Njáll stúdera hlutina.
.JPG)
Jón Garðar svæfingahjúkrunarfræðingur, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hélt fyrirlesturinn
.JPG)
Sjúkraflutningamenn íbyggnir á svipinn, Ármann, Eyþór, Ómar, Njáll, Ólafur og Sturla. Einnig var
ljósmyndarinn Ingvar á staðnum sem smellti nokkrum myndum.
.JPG)
Ólafur og Eyþór að sinna barninu með aðstoð Njáls. Jón Garðar fylgist vel með.