Áramótin voru friðsæl hjá BS þrátt fyrir nokkurn fjöldi útkalla frameftir nóttu. Ingvar Georgsson varðstjóri og hans vaktfélagar á næturvaktinni fóru þó í allmörg brunatilfelli þar sem kveikt hafði verið í uppstöfluðum umbúðapappír og “tertukössum” frá flugeldum. Um var að ræða nokkuð stórar stæður í sumum tilfellum, en ekki er vitað um alvarleg tilfelli þar sem slys eða skemmdir urðu af völdum bruna.
(Sigm.Eyþ.)
