Forsíða  >> 
1. febrúar 2007
Eldur í tvíbýli við Kirkjuteig í Reykjanesbæ

Slökkvilið BS var kallað að Kirkjuteig 15 rétt um klukkan 16:00 í dag.  Þegar Slökkvilið kom á staðinn tóku nágrannar á móti þeim á staðnum, þeir höfðu séð reyk leggja frá húsinu og boðað slökkvilið um Neyðarlínu.  Töluverður reykur kom út um brotinn  glugga á efrihæð hússins og logaði töluverður eldur í því rými.  Um tíma var óttast um að íbúar væru í húsinu en það reyndist ekki vera.  Tveir reykkafarar voru strax sendir inn í leit og björgun með sérstaka hitamyndavél og kom í ljós töluverður eldur í herbergi, eldurinn hafði teygt sig inná háaloft hússins um brunnið milliloft.  Engan var að finna í íbúðinni og var það fljótlega staðfest.  Greiðlega gekk að slökkva eldinn  og tókst slökkviliðsmönnum að hindra frekari útbreiðslu og halda eldinum við það herbergi sem upptök voru í.   Íbúðin er illa farin af völdum sóts og reyks og nokkuð víst að eldurinn var búinn að krauma ansi lengi þegar að hann uppgötvaðist.  Húsið er gamalt, en töluvert endurbyggt.  Einangrun og klæðningar í milliveggjum og millilofti var af gömlugerðinni s.s. blanda af einangrunarplasti, hefilspænir og ull.  Klæðningar voru masonit plötur.  Íbúð neðrihæðar er næstum óskemmd og í lagi en nokkuð er víst að illa hefði farið ef slökkvilið hefði ekki borið að á þessu augnabliki.

Innbrot hafa verið tíð undanfarið og fyrsta aðkoma að þessum bruna gaf til kynna að um innbrot hefði verið að ræða og eru eldsupptök talin tengjast því.  Rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurnesjum fer með rannsókn á málinu.


Kirkjuteigur 15


Upptök brunanas


Herbergi á efri hæð


Herbergi við hlið brunrýmis

 


Til baka