Forsíða  >> 
24. október 2010
Hópslysaæfing í Helguvík


Laugardaginn 16.10 var sett á svið hópslys við Helguvíkurhöfn.  Á slysavettvang komu flest allir viðbragðsaðilar á Suðurnesjum en  Brunavarnir Suðurnesja og Björgunarveitin Suðurnes sáu um æfinguna.
Æfingin hófst um kl.09:00 og fékk þá vakthafandi vakt hjá BS og lögregla tilkynningu um alvarlegt umferðarslys við Helguvíkurhöfn og jafnframt væri möguleiki að einn bíll hefði hafnað í sjónum.  Varðstjóra BS varð fljótt ljóst að umfangið væri mikið þannig að allt liðið var kallað út, jafnframt var óskað eftir aðstoð frá Björgunarsveit sem kom með fyrstuhjálpar tjöld og kafara.  Einnig komu á vettvang  greiningarsveit frá HSS, Slökkvilið, Grindavíkur, sjúkrabíll frá Grindavík og þyrla Landhelgisgæslunnar.
Umfangið var mjög mikið,  fjögurra bíla árekstur, einn bíll í sjónum og heildar farþegafjöldi var um 31 manns.
Eftir að greiningu var lokið á vettvangi voru sjúklingar  fluttir í fyrstuhjálpar tjöld og þaðan með sjúkra og björgunarsveitabílum af vettvangi.  Jafnframt voru 6 fluttir með þyrlu og fengu starfsmenn BS þjálfun við umönnun slasaðra í þyrlunni sjálfri og flugu með henni af vettvangi.
Í heild gekk æfingin mjög vel.  Vel gekk að klippa sjúklinga úr bílflökum og  koma þeim frá vettvangi.
Fjarskipti gengu vel fyrir sig og er greinilegt að aukið samstarf viðbragðsaðila á Suðurnesjum er farið að skila sér út á vettvang. 
Hættan við að svona slys gerist í okkar sveitarfélagi er vissulega fyrir hendi  og því var þörfin fyrir æfingunni mikil.  Jafnframt vitum við ekki hversu öflugt viðbragðslið Suðurnes munu hafa eftir áramót vegna niðurskurðar ríkis og sveitarfélaga og því þykir það nauðsynlegt að samhæfa öll lið.
Einnig kunnum við Landhelgisgæslunni bestu þakkir fyrir þeirra þátttöku og var það ómetanlegt að fá þyrluna með í þetta  verkefni. 

Fleiri myndir sem Ingvar G. Georgsson tók af æfingunni er hægt að nálgast hér.
Eyþór Rúnar Þórarinsson
Þjálfunarstjóri Brunavarna Suðurnesja

 



Til baka