Föstudaginn 18 maí lögðu nokkrir slökkviliðsmenn BS af stað í hina árlegu ferð til vina slökkviliðs BS í Lindesberg. Megin tilgangur ferðarinnar er að þjálfa slökkviliðsmenn í þeim tilfellum sem upp geta komið í slökkvistarfi, þó er aðal áherslan verklegar æfingar á gámavæði þeirra. Helstu æfingar byggja heitum reykköfunum, bæði stuttum og löngum, eðli elds þar sem framkölluð er yfirtendrun. Aðstaðan er til fyrirmyndar, gámaeiningar endurspegla þjálfun í lífsbjörgun tengdum íbúðarbruna, langar og stuttar reykkafanir sem og flókin verkefni tengdum iðnaðarhúsum, stjórnun á vettvangi, klipputækni og margt fleira. Þá er hefðbundið að taka dag í skoðunarferð til slökkviliðsins í Örebro; slökkvilið sem er vel tækjum búið, flott slökkviliðsstöð m.a. er aðstaðan fyrir starfsmenn ein sú glæsilegasta.
Strákarnir koma síðan heim um helgina klárari í slaginn hér heima. Sjáið nýjar myndir í Myndasafni “Lindesberg 2007
(Sigm. Eyþ.)
