Forsíða  >> 
21. maí 2007
29 útköll í gær hjá BS. - Mörg af þeim voru bráðatilfelli

Slökkviliðs-og sjúkraflutningamenn höfðu í miklu að snúast síðasta sólarhringinn, alls voru útköllin 29 og mörg þeirra mannfrek og erfið.  Af þeim 29 útköllum voru samtals fjöldi sjúkraflutninga 11, þar af 8 bráðatilfelli, einn bruni var í skemmu á Stafnesi og nokkur útköll vegna öryggiskerfa, þar af var innbrot framið í Bónus.  Flest alvarlegu útköllin voru vegna umferðaróhappa og veikinda, greiðlega gekk að leysa þessa törn og má þar mestu þakka velvilja og dugnaðar mannhalds BS.

Fljótlega eftir hádegi á Sunnudag var forgangsútkall á sjúkrabíl vegna umferðaróhapps á Garðvegi en málið var afgreitt á staðnum.  Samtímis var beðið um sjúkrabíl að Vogaafleggjara, tilkynnt var um mann  með alvarleg einkenni og brjóstverk, en allt fór vel og maðurinn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.  Stuttu síðar kom brunaútkall frá kerfi Húsasmiðjunnar, þar var um bilun í skynjara að ræða.  Á áttunda tímanum var tilkynnt um eld í skemmu á Stafnesi, á staðinn fóru tveir dælubílar, Tankbíll, Sjúkrabíll og Körfubíll.  Töluvert tjón var á skemmunni en slökkvistarf gekk vel.  Samtímis kom bráðatilfelli á sjúkrabíl þar sem tilkynnt var um meðvitundarleysi á Íþróttaleikvangi/Knattspyrnuvelli í Reykjanesbæ.  Endurlífgun tókst, viðkomandi var fyrst fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og síðan áfram á Sjúkrahús Reykjavíkur, heilsa mannsins var eins og við er að búast í dag.  Fáum mínútum síðar barst beiðni um forgangsflutning frá HSS, fæðingardeild til Sjúkrahús Reykjavíkur.  Um klukkan 22:00 kom boð frá öryggiskerfi Bónus, en þar hafði verið brotist inn og var lögreglu afhentur vettvangur.  Fáum mínútum síðar var beðið um aðstoð og sjúkrabíl að bæ á Vatnsleysuströnd vegna veikinda.  Síðar um nóttina eða um kl. 02:30 var tilkynnt um árekstur rútu og fólksbíl á Reykjanesbraut.  Tilkynnt var  um þrjá slasaða og voru því sendir á staðinn tveir sjúkrabílar, tveir fegnu að fara að lokinni skoðun á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en einn var fluttur á Sjúkrahús Reykjavíkur, lítið slasaður.  Samtímis varð útafakstur á Grindavíkurafleggjaranum.  Klukkan var rúmlega 05:00 þegar tilkynnt var um bílveltu á Reykjanesbraut, meiðsl voru óverulega og málið afgreitt á staðnum.  Um 06:00 var beðið um sjúkrabíla að gömlu flugstöðinni, þar hafði vél lent með veikan mann sem fluttur var á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til frekari aðhlynningar.

Þess má geta að einungis eru fjórir menn á vakt auk stjórnenda bakvaktar, þannig að margir af frívakt voru í vinnu hjá BS í gær, þá hafði vaktmönnum dagvaktarinnar verið haldið áfram vegna anna fram yfir kl. 01:00, og þá staðið samtals í 17 klukkustundir.  Ljóst er að breyting og stækkun samfélagsins kallar á ábyrgari þjónustu eignaraðila s.s. aukið mannhald, meiri búnað og bætta aðstöðu fyrir verkskyldur Brunavarna Suðurnesja.
(Sigm. Eyþ.)


Til baka