Á áttunda tímanaum í gærkvöldi var Slökkviliði Brunavarna Suðurnesja og Slökkviliði Sandgerðis tilkynnt um reyk sem legði frá skemmu sem staðsett við urðunarstað á gamla Varnarsvæðinu við Stafnes, eða um 1,5 kílómetra sunnan strandstaðar Wilson Muga.
Þegar fyrsti bíll kom á staðinn var greinilegt að eldur hafði logað í töluverðan tíma; greinileg ummerki mannaferða á staðnum bentu til að kveikt hafði verið í skemmunni. Greiðlega gekk að ná tökum á eldinum og slökkva allan yfirborðseld enda byggingin eitt hólf og nánast ekkert af eldsmat innan dyra. Bygging var stálgrindarhús, klædd að utan með Trapizu og að innan með Bárujárni. Eldur hafði læst sig víða í timburgrind á milli þilja í útveggjum og þurfti stórvirk tæki til að fletta skelinni af húsinu og tæta heilar einingar í sundur til að komast að eldinum. Slökkvistarfi lauk fyrir miðnætti; þá var búið rífa skel skemmunnar og tryggja vettvang vegna fokhættu. Sterk vestanátt í átt að flugbrautum var á staðnum.
Nokkuð víst er að kveikt var í skemmunni sem er í eigu Hringrásar. Þegar eldurinn náði að brjóta sig í gegn um þak skemmunnar sást reykurinn frá brunanum víða að og bárust fjölmargar hringingar og tilkynningar úr nágrenni skemmunnar, Sandgerði og Höfnum til Neyðarlínunnar sem þá kallaði út Lögreglu og Slökkvilið. Slökkviliðsstarf gekk vel, engin slys urðu á fólki né skemmdir á búnaði liðanna.
Texti Sigm. Eyþ., myndir Reynir Sveinsson.



