Í bréfi frá Ara og Evu, sem eru í Boston, kemur fram að allt hefur gengið vel á spítalanum með Lilju Líf, sem er ótrúlega dugleg og góð. Hún var að mestu sofandi allan föstudaginn samkvæmt ákvörðun lækna. Lilju var haldið sofandi í öndunarvélinni til laugardagsins því þar sem hún er lítið barn og aðgerðin stór og því engin ástæða til að vekja hana í dag. Hún var síðan aðeins vaknandi á laugardeginum en svolítið illa áttuð vegna lyfja sem hún var búin að fá. Hún var farin að anda alveg sjálf á laugardagsmorgninum og öndunarvélin var þá aftengd og fjarlægð um kl.16:00 á laugardeginum.
Á sunnudagsmorgninum þá var hún mikið að hressast og líkari sjálfum sér, mikið af bólgunum og bjúgmyndun var farin úr henni, “hún var líka svo ánægð að sjá okkur þegar við komum að hún fór að gráta af ánægju við að sjá og heyra í mömmu og pabba og setti upp skeifu og brosti til skiptis. Hún er líka búin að vera svo dugleg stelpan og eru starfsfólkið mjög ánægð með batann hennar. Meira segja gengur svo vel að hún útskrifaðist af gjörgæslunni um kl.18:30 í kvöld og er komin inná hjartadeildina sem hún síðan útskrifast út af og um leið þá út af spítalanum. Þó dagarnir séu langir hér í Boston þá gerist mikið á hverjum degi. Hún er nú að mestu laus við allar þær tengingar sem við hana voru tengdar. Er einungis með súrefni í gleraugum, tengd EKG, cuff á upphandlegg og tvo iv-leggi sem og sonduna. Maður sér hér á monitornum strax muninn á henni fyrir og eftir aðgerð. Hún var alltaf svo lafmóð og ör í öndun fyrir aðgerð og var yfirleitt anda 70-90 pr./min en er nú með mun eðlilegri öndun og komin í 30-50 öndunardrætti á mínútu.
Við erum því mjög sátt hve vel er búið að ganga hér enda ekki annað hægt eins og þetta er búið að ganga og vonandi verður áframhald á því . Við erum farin að sitja með hana í fanginu og er hún farin að drekka pela hjá okkur en það er verið að trappa hana aftur upp í þeirri gjöf og síðan fær hún restina í gegnum sonduna sem hún vonandi losnar síðan fljótlega við þegar hún fer að taka góðar pelagjafir.
Kveðja frá Boston
Ari, Eva Lind og Lilja Lif”
