Forsíða  >> 
16. maí 2007
Enn meiri reykköfun í Sæbjörgu. – Bestu þakkir, frábær aðstaða!

Hópur slökkviliðsmanna BS nýtti sér aðstöðu og æfði reykköfun í Skólaskipinu  Sæbjörgu á mánudaginn, en skipið lagði að bryggju í Keflavíkurhöfn um kl. 18:00 á föstudag, fyrri hópur slökkviliðsmanna BS æfði þá um kvöldið.  Æfingin var eins og sú fyrri og  byrjaði með námskeiði um elda í skipum sem Þráinn kennari við skólann sá um.  Að því loknu var æft að flytja búnað slökkviliðsins og slökkviliðsmenn BS sjóleiðina með björgunarbát Björgunarsveitarinnar Suðurnes um borð í Sæbjörgu.  Eins og í fyrri æfingunni var sett upp leikrit um að mikill eldur logaði í skipinu og að sex úr áhöfn skipsins væru sennilega lokaðir í rýmum skipsins m.a. í eldhúsi og vélarrými.  Til viðbótar hafði einn 100 kg. Slökkviliðsstjóri (með púls) villst í einum af göngum skipsins og fundu reykkafara hann fljótlega, liggjandi þvert á gönguleið.  Töluvert bras var að koma kauða upp stiga á milli þilfara og urðu reykkafarar m.a. að setja á hann bönd; enga aðstoð var að fá hjá áhorfendum sem var nokkuð skemmt við uppátækið.   Alls voru sendir voru inn til leitar 9 reykkafarar Brunavarnar Suðurnesja, og fóru menn í leit nokkrum sinnum.  Æfingin gekk vel og voru menn ánægðir með aðstöðuna í skipinu og þetta frábæra tækifæri.  Bestu þakkir færum við áhöfn skipsins og öðrum þeim sem koma að undirbúningi og þátttöku þessa verkefnis. (Sigm. Eyþ.)


Skráning og undirbúningur -- miklar pælingar


Vélarrúmið -- Er vélstjórinn vafinn utan um rörið, sumir áttu að auki að loka fjórða krana á hægri hönd.

Til baka