Forsíða  >> 
13. febrúar 2009
Námskeið í fullum gangi. Nýjar myndir í myndasafni.

Þessa dagana eru starfsmenn Brunavarna Suðurnesja á námskeiðum bæði í slökkviliðs- og sjúkraflutningafræðum. Í atvinnumannanámskeiði í slökkviliðsfræðum er búið að æfa mikið í hinum ýmsu verkefnum og má sjá myndir frá því í myndasafninu. Í dag var reykköfun um borð í Bylgju VE 75. Sett var upp atvik þar sem 5 manns voru fastir inni vítt og breitt um skipið og nemendurnir áttu að finna þá og koma þeim út. Að því loknu gengu nemendur um skipið og skoðuðu alla króka og kima til að átta sig betur á aðstæðum í bátum sem þessum. Einnig var skoðað nýtt slökkvikerfi sem nýbúið er að setja í skipið. Umsjónarmenn þessa hluta námskeiðsins sem komu frá Brunavörnum Suðurnesja nutu liðsinnis hluta úr áhöfn Bylgju VE og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir og gaman að sjá hvað þeir leggja mikið upp úr því að öll öryggisatriði séu á hreinu. Einnig var farið um borð í Hannes Þ. Hafstein, björgunarbát sem Björgunarsveitin Sigurvon og Björgunarsveit Suðurnesja eru með á sínum snærum, og þar skoðaður útbúnaður sem gæti nýst í slökkvi- og björgunarstarfi á hafi úti. Í gær var farin vettvangsferð um borð í Helgafell sem er eitt af fraktskipum Samskipa. Framundan er svo fleiri verklegar æfingar tengt skipum og svo olíueldar.

Reykkafarar að skipuleggja aðgerðir

Bylgja VE 75

Hún tók á þessi æfing eins og sjá má


Til baka