Skólaskipið Sæbjörg lagði að bryggju í Keflavíkurhöfn um kl. 18:00 í dag, og að sjálfsögðu nýttu slökkviliðsmenn Brunavarna Suðurnesja tækifærið og æfðu m.a. reykköfun í skipinu. Æfingin var umfangsmikil, byrjað var á námskeiði um elda í skipum sem Þráinn kennari við skólann hélt, síðan var æft að flytja búnað slökkviliðsins og slökkviliðsmenn BS sjóleiðina að skipinu með björgunarbát Björgunarsveitarinnar Suðurnes um borð í Sæbjörgu. Tilkynnt var um að mikill eldur logaði í skipinu og að sex úr áhöfn skipsins væru sennilega lokaðir í rýmum m.a. í eldhúsi og vélarrými og vinnslusal. Sendir voru inn til leitar 8 reykkafarar Brunavarna Suðurnesja, æfingin gekk vel og voru menn ánægðir en þreyttir eftir reykköfun í erfiðu og þröngu rými. Önnur sambærileg æfing verður mánudaginn n.k. (Sigm. Eyþ.)

Skólaskipið Sæbjörg

Kristján bjargaði fjórum.

Borgar lenti í erfiðri leið, bjargaði þó 100 kílóa vélstjóranum.

Siggi varðastjóri og Borgar með vélstjórann í erfiðri stöðu.