112

Fréttir

Annríki um helgina

Annríki hjá sjúkraflutningsmönnum Brunavarna Suðurnesja um helgina. Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja reiknuðu með rólegri helgi þegar að föstudagurinn byrjaði enda veðurblíðan með eindæmum og margir sem fóru úr bænum í ferðalag.  Helgin byrjaði rólega en á Mánudagsmorgun voru útköllin orðin 24 og af þeim voru 7 F1 flutningar og 5 F2 flutningar sem eru hæstu forgangar. Var þar Sunnudagurinn stærstur en þá var farið í 13 útköll á dagvaktinni og voru þau af öllum toga, vinnuslys, hjartasjúkdómar og önnur veikindi og var í fjórum tilfellum tveir sjúkrabílar út í einu.  Það er því óhætt að segja að álagið hafi verið töluvert og bætir það ekki að fæðingardeild HSS er lokuð til 26. júlí og fara því allir fæðingarflutningar inn á kvennadeild Landspítalans við Hringbraut. Eins og fólk hefur eflaust tekið eftir stefnir allt í að slökkviliðs- og sjúkraflutningsmenn fari í verkfall og byrjar það á Föstudaginn 23. Júlí með dagsverkfalli og verður þá ekki sinnt F4 sjúkraflutningum sem eru lægsti forgangur  en getur haft óþægindi fyrir stofnanir sem þurfa að senda sína skjólstæðinga með sjúkrabíl. Eins  verður ekki sinnt F3 útköllum  hjá slökkviliði. Er það von stjórnanda BS að menn nái saman og ekki þurfi að koma til þessa verkfalls svo að öryggi fólks muni ekki verða skert  og að allir samningsaðilar geti unað sáttir við sitt.