Ótrúlegt en satt!

Þegar starfsmenn Brunavarna Suðurnesja voru við vikulegt eftirlit á einum af útkallsbílum slökkviliðsins, bíll sem er varasjúkrabíll kom í ljós að einhverjir óprúttnir náungar höfðu stolið eldsneyti af bílnum.
Á undanförnum vikum hefur borið á því að eldsneyti sé stolið af bílum og er skemmst að minnast eldsvoða við Iðavelli þegar verið var að dæla eldsneyti af bíl með þeim afleiðingum að eldur varð laus og mikið tjón hlaust af. Þessir þjófnaðir virðast vera farir að færast á annað stig, þegar svo er komið að eldsneyti er stolið af neyðarbílum slökkviliðsins.
Þegar eldsneyti er stolið af neyðarbílum getur það haft mjög alvarlegar afleyðingar þegar til neyðartilfella kemur og viðkomandi útkallstæki er nánast eldneytislaust, ég veit ekki hvort að þeir sem leggjast svo lágt geri sér grein fyrir því að útkallið gæti eins verið til þeirra, eða þeirra ættingja sem og annara bæjarbúa.
Að lokum vil ég hvetja þá sem verða varir við eitthvað óeðlilegt athæfi að hafa samband við lögreglu þannig að hægt verði að stemma stigu við þessum ófögnuði sem þessir þjófnaðir eru.
Jón Guðlaugsson
Slökkviliðsstjóri
Brunavarna Suðurnesja