Reykskynjarar
Reykskynjarar eru ódýr öryggistæki sem ættu að vera á hverju heimili. Skerandi vælið í þeim getur bjargað mannslífum. En til þess þurfa þeir:
- Að vera til staðar og á réttum stað.
- Að vera réttrar gerðar og í lagi.
- Að hafa góða rafhlöðu.
Til eru tvær megingerðir af reykskynjurum, optískir og jónískir, auk skynjara sem sameinar eiginleika beggja. Jóníski skynjarinn skynjar vel reyk með stórum ögnum, til dæmis opinn eld, en síður upphaf glóðarbruna, til dæmis í sófa, sem optíski skynjarinn nemur hins vegar mjög vel. Því er æskilegt að hafa báðar gerðirnar á heimilinu. Einnig eru til samtengjanlegir reykskynjarar og skynjarar með ratljósi.
- Hafið eftirfarandi í huga um reykskynjara:
- Ekki staðsetja reykskynjara í eða of nálægt eldhúsi.
- Setjið optískan reykskynjara á ganga eða opin svæði.
- Setjið optískan reykskynjara nálægt rafmagnstöflu.
- Æskilegt er að setja reykskynjara í öll svefnherbergi.
- Best er að samtengja alla reykskynjara í íbúðinni.
- Sé íbúðin fleiri en ein hæð, setjið reykskynjara á allar hæðir.
- Reykskynjara ber að staðsetja í lofti, ekki nær vegg eða horni en 50 sm.
- Skiptið um rafhlöðu í reykskynjaranum árlega.
Prófið reykskynjarann mánaðarlega með því að ýta á prófunarhnappinn.
Líftími reykskynjara er breytilegur, allt frá 3 árum upp í 10 ár . Aðgætið framleiðsludag/ár þegar reykskynjari er keyptur.