Forsíða >>
| Eldvarnareftirlit BS |
>> |
 |
Hlutverk |
Starfsemi Eldvarnareftirlits BS.
Starfsemi eldvarnareftirlits byggir á 12 grein laga nr 75/2000. Hlutverk eldvarnareftirlits B.S er að:
- Hafa í samvinnu við byggingafulltrúa eftirlit með því að nýbyggingar fullnægi öryggiskröfum samkvæmt lögum og reglugerðum um brunavarnir áður en notkun þeirra er heimiluð.
- Gera úttekt á mannvirkjum í notkun og gera kröfur um nauðsynlegar úrbætur á brunavörnum til að vernda líf, heilsu fólks umhverfi og eignir.
- Leiðbeina fyrirtækjum og stofnunum eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi.
- Hafa eftirlit með því að eigendur og forráðamenn atvinnuhúsnæðis sinni skyldum sínum um brunavarnir samkvæmt lögum og reglugerðum í samræmi við leiðbeiningar sem Brunamálastofnun gefur út.
- Að halda skrá yfir öll mannvirki og aðra staði þar sem eldsvoði getur valdið sérstakri hættu á manntjóni eða umtalsverðu tjóni á umhverfi eða öðrum verðmætum.