Forsíða  >>  Brunavarnir Suðurnesja  >> Brunavarnasvæði

Starfssvæði BS
Starfssvæði Brunavarna Suðurnesja nær frá Hvassahrauni, n.t.t. sunnan Virkishóla um öll  Suðurnes að Reykjanestá utan Grindavíkur, um Seltjörn, Sandgerði og Flugverndarsvæði innan Keflavíkurflugvallar á Suðurnesjum.   Samvinna er við Slökkvilið Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins Slökkvilið Miðneshrepps,  Slökkvilið Grindavíkur, og, en Slökkvilið Grindavíkur og Miðneshrepps eru útkallsslökkvilið.

Starfsvettvangur BS
Samkvæmt upplýsingum Hagstofu 1.janúar 2010 var fjöldi íbúa á svæðinu 21.359. (sjá eftirfarandi töflu um skiptingu og fjarlægð frá slökkvistöð BS).

Fjöldi íbúa á svæði slökkviliðsins var 16.812 þ.e. í Reykjanesbæ, Sveitafélaginu Garði og Sveitafélaginu Vogum, en bæði Grindavík og Sandgerði reka útkallsslökkvilið. Fjöldi íbúa í Grindavík og Sandgerði var  4.547, en Slökkvilið BS annast sjúkraflutninga í Sandgerði og á Flugvallarsvæðinu.  Áætlaður fjöldi íbúðarhúsnæðis á svæði BS er rúmlega 8100.  Að auki eru margvísleg iðnaðarhúsnæði af misjöfnum stærðum, en þó ber mest á iðnaðarhúsnæði fyrir smærri iðnað svo sem verkstæði af ýmsum toga, sem og fiskvinnslu- og fiskverkunarhúsum af ýmsum stærðum.  Alþjóðaflugvöllur er á Suðurnesjum og fóru tæplega 1.700.000. farþegar  um
Flugstöð LE árið 2009 , þar af stoppuðu um 700 þúsund farþegar á svæðinu.  Miklir þungaflutningar eru um svæðið og í tengslum við flugvöllinn.  Suðurnes er mikill ferðamannastaður og má þar nefna að fjöldi gesta baðhúss Bláalónsins árið 2009 var rúmlega 450 þús.

Eftirfarandi sýnir skiptingu íbúa á þjónustusvæðinu og lengstu vegalengdir frá slökkviliðsstöð BS.

Staður Íbúafjöldi í 1.janúar 2010 Lengsta vegalend
Flugstöð L.E. Alþjóðaflugvöllur Yfir 1,6 millj. farþega fóru um flugvöllinn á árinu. 2,5 km.
Reykjanesbær 14.091 íbúar 8 km.
Sandgerði, Miðneshr. 1.710 íbúar 9 km.
Hvalsnes um Sandgerði strjálbýli 15 km.
Reykjanestá um Hafnir strjálbýli / iðnaður 21 km.
Sv. - Garður 1.515 íbúar 10 km.
Grindavík 2.837 íbúar 24 km.
Sv.- Vogar og  Vatnsleysuströnd 1.206 íbúar 18 km.
Hvassahraun, Straumsvík strjálbýli / sumarbústaðir 28 km.
Samantekt:
Alls á svæði BS 16.812 íbúar 28 km.
Alls Grindavík og Sandgerði 4.547 íbúar 24 km
Samtals fjöldi á Suðurnesjum 21.359 íbúar 28 km.